Fimmtudagur, 31. mars 2011
Skelrækt
Tilraunir með skelrækt í Hvammsfirði eru langt á veg komnar. Það er hópur góðra manna er stendur að bæki ræktuninni. Húsnæði hefur verið keypt niður við höfnina og verið að gera klárt fyrir uppskeru.
Þó verður að segjast að íbúar norðan Gilsfjarðar eru lengra komnir. Í fararbroddi er Bergsveinn Reynisson á Gróustöðum. Hann ræktar skel bæði í Gilsfirði og í Króksfirði og landar tugum tona á hverju ári.
Nú hafa skelræktendur um allt land stofnað landssamtök. Meira um þetta það og Begga á Gróustöðum er að finna á góðum Reykhólavef á þessari slóð hér.
Miðvikudagur, 30. mars 2011
Af vef Skessuhorns
Þriðjudagur, 29. mars 2011
KM þjónustan
Vinir og fjölskylda | Breytt s.d. kl. 15:49 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Laugardagur, 26. mars 2011
Hveitirækt í Dölum
Vinir og fjölskylda | Breytt s.d. kl. 09:46 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Föstudagur, 25. mars 2011
Gott mál
![]() |
Fá að rækta erfðabreytt bygg |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Miðvikudagur, 23. mars 2011
Vistbönd banka
Margir eru bundnir sínum viðskiptabanka eftir að hafa tekið hagstæð lán hjá þeim í góðærinu svokallaða. Viðskiptavinir skrifuðu undir lán með þeim vaxtakjörum að vextir myndu hækka ef viðkomandi hætti viðskiptum við bankann. Þessi vistbönd hamla nú siðferðislegri uppbyggingu bankakerfisins. Bankar geta í skóli vistbanda hegðað sér á ósvífinn hátt; t.d. haldið áfram að borga ofurlaun.
Engu að síður eru það alltaf einhverjir sem geta skipt og gera það. Því er gaman að rekast á frétt um að heil sveitarfélög skipti um banka vegna þessa. Sjá frétt um það á þessari slóð: www.visir.is/eyjafjardarsveit-haettir-vidskiptum-vid-arion-vegna-ofurlauna/article/2011110329598
Vinir og fjölskylda | Breytt s.d. kl. 09:58 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Þriðjudagur, 22. mars 2011
Heimsókn á Reykhóla
Í gærkveldi heimsótti ég Reykhólaskóla. Það eru orðin mörg ár síðan ég kom þar inn síðast; trúlega 15. 'Í Reykhólaskóla hófum við Gugga feril okkar sem kennarar svo bæði skólinn og staðurinn er okkur kær. Hún Rebekka á Stað, sem er fyrverandi nemandi minn og núverandi kennari við skólann fylgdi mér um skólann.
Þar sem búið er að byggja íþróttahús hefur gamli íþróttasalurinn verið uppfærður í glæsligt bókasafn. Þá hefur leikskólinn verið stækkaður um helming. Einnig var búið að sameina matsal og setustofu í einn stærri sal. Allt breytingar sem litu vel út.
Sunnudagur, 20. mars 2011
UDN
Sambandsþing UDN verður haldið á morgun á Reykhólum. Stórt nafn yfir lítinn fund. Hér á árum áður tók þingið allan laugardaginn frá kl. 10 - 16 hið minnsta. Fulltrúar og gestir voru oft um 30 - 40. Nú er þettta kvöldstund með um 10 - 15 fulltrúum.
Það eru eiginlega bara þrjú ungmennafélög eftir á svæðinu með einhverja reglulega starfssemi; Æskan, Ólafur Pái og Afturelding. Hestaíþróttadeild Glaðs er reyndar enn að. Glímufélagið er svo nýtt aðildarfélag og þar er sannarlega helst að sjá íþróttalegan árangur.
Gömul og gróin ungmennafélög deyja hægt og ekki er grundvöllur til að sameina gamla keppinauta.
Þriðjudagur, 15. mars 2011
Rafmagnsleysi
Í gærkveldi gerðist það að hér í Dölum varð rafmagnslaust í rúmar þrjár klukkustundir. Þegar ég svo kom í skólann í morgun ræddur krakkarnir mikið um þetta sérstaka kvöld. Nær undantekningalaust hafði rafmagnsleysið orskað það að þau og foreldrar þeirra gátu ekki gert það sama og venjulega.
Mörg sögðust þau hafa verið að lesa við kertaljós eða spila og spjalla með foreldrum sínum.
Þeim fannst rafmagnsleysið alveg æðislegt.
Föstudagur, 11. mars 2011
Af hverju er Byr ekki enn sparisjóður ?
Byr var sameinaður lífeyrirstjóður fyrir hrun. Sparisjóður Hafnafjarðar, Kópavogs og vélstjóra sameinuðust í einn sparisjóð minnir mig. Þetta varð við sameininguna næst stærsti sparisjóður landsins eftir Spron.
Byr féll ekki strax, lifði fram til vors 2010 þegar ríkið tók hann yfir og skipaði nýja stjórn í april. Það skrýtna sem gerðist var að ríkið ákvað að halda Byr opnum sem banka en ekki sem sparisjóði. Þrátt fyrir allt tal um að halda sparisjóðakerfi landsins sem heillegustu var stærsta starfandi sparisjóðnum breytt í banka af ríkinu. Þetta hef ég aldrei skilið.
Þá var röðin komin að Sparisjóði Keflavíkur, sem nú var orðinn stærstur...hann var líka látin fara...látinn sameinast banka.
Hvernig væri að endurvekja nú Byr sem sparisjóð...hvað þarf eiginlega ríkið að gera til að slíkt geti orðið að raunveruleika ?
Tenglar
Góðar slóðir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (19.9.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 2
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar