Sunnudagur, 28. nóvember 2010
Að slátra hefðum á aðventunni
Aðventunni fylgja margar hefðir. Sumar eru nær eins hjá öllum en aðrar hafa einhverja sérstöðu hjá hverju heimili fyrir sig. Ég held að hverjum og einum væri nokkuð holt að íhuga hefðir og jafnvel flokka þær í huga sér, sérstaklega ef einhverjum finnst of mikið framundan í þeim efnum.
Það má flokka þetta á einfaldan hátt, t.d. skipta öllum hefðum í tvennt; hefðir sem mér líkar og hefðir sem mér líkar ekki. Það má líka flokka hefðum eftir eðli þeirra; t.d. hefðir sem byggja á samskiptum og nærveru fólks (t.d. jólaboð og aðventukvöld) og hefðir sem snúa að umgjörð (jólaþrif og skreytingar). Ekki síst væri fróðlegt að flokka eða greina jólahefðir eftir aldri t.d. hvaða hefðir hafa flust milli kynslóða í fjölskyldunni (gæti t.d. verið laufabrauðsbakstur) og hvaða hefðir eru alveg splunkunýjar (t.d. að fara á jólatónleika með Frostrósum). Svo er auðvitað hægt að skipta hefðum í flokk þeirra sem eru trúarlegs eðlis og þeirra sem eru það ekki.
Og hver er niðurstaðan. Jú þegar búið er að skoða þessi mál lauslega kemur í ljós þvílíkur aragrúi af hefðum og engan skyldi undra þótt á þessu árstíma sé stress í hámarki, skilnaðir í hámarki og vanlíðan í hámarki.
Það er kannski alls ekki vitlaust að slátra hreinlega slatta af hefðum þeim sem maður hefur ánetjast og finnst flæktur í....og njóta betur þeirra sem maður setur á.
Fimmtudagur, 25. nóvember 2010
Loksins er verðbólgan að hverfa
Það tókst! Verðbólgan er nú 2,6%, 0,1 prósentustigi frá verðbólgumarkaðinu. Hún hefur ekki verið lægri síðan í apríl 2004. Það sem þurfti til var allsherjarvantraust á gjaldeyrismarkaði, gengishrun, hrun bankakerfisins, 30% höfuðstólshækkun verðtryggðra lána og, rúsínan í pylsuendanum, gjaldeyrishöft.
Tekið af vef Egils silfursjóðs.
Miðvikudagur, 24. nóvember 2010
Sjósund í Búðardal
Á Netinu má finna þetta skemmtilega myndband af tilraunasundi í höfninni í Búðardal. http://www.youtube.com/watch?v=hMmkt1IIGT8
Föstudagur, 19. nóvember 2010
Ekki traustvekjandi fyrirtæki
Olíufélögin hækka verð á eldsneyti öll sem eitt. Engin sýnilega ástæða finnst og Neytendasamtökin og Félag Bifreiðaeigenda gera athugasemdir. Þá lækka félögin öll verðið aftur.
a) Afhverju eru öll olíufélögin samstiga í að bæði að hækka og að lækka ?
b) Hvernig í ósköpunum á maður að mynda farsæl viðskiptatengsl við þessi fyrirtæki ?
![]() |
Verð á eldsneyti hefur lækkað |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Þriðjudagur, 16. nóvember 2010
Rafbækurnar eru enn á leiðinni
Um nokkurt skeið hefur því verið spáð að rafbækur séu við það að ryðja hinum hefðbundnu pappírsbókum úr vegi. Slík breyting hefur látið á sér standa, þótt að vegur rafbókanna hafi reyndar aukist jafnt og þétt. Þannig tilkynnti Amazon í sumar að nú seldust í fyrsta skipti fleiri rafbækur hjá þeim en innbundnar bækur.
Það sem meðal annars stendur rafbókum fyrir þrifum er að víða eru þær en of dýrar miðað við pappírsbókina og er ástæða þessa ekki síst að venjuleg bók ber 7 % skatt en rafbókin 25 % skatt. Það er svo spurning hvort það sér réttlát.
Föstudagur, 12. nóvember 2010
Og borga svo ...
Ég veit ekki betur en að bankarnir hafi fengið 420 milljarða afslátt af lánum heimilanna þegar þau voru færð til nýju bankanna frá þeim gömlu. Af hverju eiga þeir að sitja á þeim pening? Er það réttlæti eða lögmál að þegar bankakerfi setur hagkerfi á hliðina, þá eigi skattgreiðendur að borga fyrir uppbyggingu bankakerfisins og bankakerfið eigi síðan að eignast allar eignir heimilanna?
Þetta eru orð formanns Hagsmunasamtaka heimilianna...eftir að stjórnmálamenn sögðu flata niðurfærslu of dýra leið. Og er nema von að blessaður maðurinn spyrji sig að þessu. Auðvitað höldum við svo áfram að borga...eða er það ekki ?
http://www.heimilin.is/varnarthing/
Sunnudagur, 7. nóvember 2010
Kannski
Hvernig væri að skoða vefinn www.kannski.is ?
Fimmtudagur, 4. nóvember 2010
Alvöru kreppa
Það er nú ekki ósjaldan sem maður lendir í samtölum um þá kreppu sem talið er að hafi skollið á í október 2008. Í slíkum umræðum er ekki óalgengt að mér eldra fólk telji að þetta sé ekki alvöru kreppa. Ég mótmæli því aldrei enda erfitt að sjá að hér sé allt á heljarþröm þótt þeim hafi fjölgað sem ekki hafa það gott. Las líka nýlega að landið er talið það 17 besta í heiminum að búa í.
Var númer eitt 2007.
Mánudagur, 1. nóvember 2010
Krítík
Þessa dagana er verið að safna áskrifendum að nýju vikublaði. Blaðið ber heitið Krítík og eins og nafnið felur í sér er því ætlað að vera gagnrýnið. Það ætlar að fjalla um allt annað en frægt og fallegt fólk.
Áhugaverð tilraun: www.kritik.is
Vinir og fjölskylda | Breytt s.d. kl. 21:26 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Tenglar
Góðar slóðir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (20.9.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 2
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar