Laugardagur, 6. október 2007
Umbun fyrir hvað ?
Það er með ólíkindum að fyrrverandi kosningastjóri Framsóknarflokksins skuli vera umbunað í formi kaupréttar í risastóru orkufyrirtæki. Framsóknarflokkurinn dó næstum því í kosningunum í vor. Ég er ekki hissa á að ekki gangi vel á þeim bænum ef mælikvarðarnir eru þessari línu.
Þetta minnir mig á tyrkneskt máltæki sem er eitthvað á þessa leið: "Það skiptir ekki máli hver þú ert heldur hverja þú þekkir".
Mánudagur, 1. október 2007
Rauðrunni - rooibos
Fyrir nokkrum vikum (eiginlega mánuðum) keypti ég mér rooiboste eða "rauðrunnate" eins og það heitir á íslensku. Ég síðan drukkið þetta te reglulega og klárað hvern pakkann á fætur öðrum. Prufað það í ýmsum bragðbættum útfærslum og líkað vel við þær allar.
Rauðrunninn á uppruna sinn að rekja til Suður-Afríku. Frumbyggjarnir notuðu rauðrunnann til að gera sér ávaxtamikið og sætt te, en seinna tóku Evrópubúar það upp eftir þeim. Greinar runnans voru þurrkaðar og síðan saxaðar í kurl. Teið var fyrst flutt út til fjarlægra landa á 18. öld, og útflutningurinn hefur aukist jafnt og þétt síðan. Þessi útflutningsaukning
varð til þess að menn fóru að rækta runnann skipulega og undir eftirliti. Hágæða rauðrunnate er hægt að þekkja á rúbínrauðum lit þess og hinu mjúka, sæta og ilmríka bragði sem gefur því þetta sérstaka bragð. Teið er m.a gott við þunglyndi, svefnleysi, þynnku, öldrunareinkennum og magakrampa.
Nú áhrifin láta ekki á sér standa. Þetta er algjört kraftaverkate, ef te skyldi reyndar kalla. Nær væri að tala um jurtaseyði. Fæst í öllum heilsubúðum og stærri kjörbúðum t.d Nóatúni.
Tenglar
Góðar slóðir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (25.9.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 6
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 5
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar