Leita í fréttum mbl.is

Umhverfisumræða - þökk sé Kárahnjúkum

snaefellÞað verður greinilegra og greinilegra að umhverfissinnum á Íslandi hefur vaxið mikið fiskur um hrygg síðustu ár.  Þótt umhverfissinnar hafi tapað  "stríðinu" um virkjun við Kárahnjúka þá hefur hreyfing þeirra elfst.  Þessu reiknuðu ríkjandi valdhafar eflaust ekki með.   Hin umdeilda virkjun og hvernig var staðið að henni hefur " búið til" heilu fylkingarnar af umhverfissinnum, gert það að verkum að mun erfiðara verður að virkja almennt og mjög örðugt að fá sett niður álver jafnvel þótt síkt væri hagstætt eða nauðsynlegt fyrir þjóðarbúið. 

Útgáfa Draumalandsins eftir Andra Snæ Magnússon og ganga Ómars Ragnarssonar niður Laugarveginn voru tímamót í þessari umræðu.   Og þegar vel gengur og mörg þúsund manns ganga saman, stofna hreyfingar og stjórnmálaflokka saman, safna þúsundum undirskrifta saman...verður sífellt auðveldara fyrir hinn venjulega "Jón" að hrífast með.  

Ég er ekki alltaf sammála málflutningi þessa fólks, en ég tek ofan fyrir dugnaði þess og elju.  Það holla við þetta allt saman er hversu gott dæmi þetta er um hvernig minnihlutahópur vinnur sig í að verða stór og ráðandi með lýðræðislegum vinnubrögðum.

Í raun má þakka öfluga sveit umhverfissina nú því að farið var út í að virkja Kárahnjúka.


mbl.is Leikhúsgestur rökræddi við leikara í miðri sýningu á Draumalandinu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ester Sveinbjarnardóttir

Ég fór í gönguna með Ómari, finnst tími til komin að breyta um áherslur, en það er erfitt að kjósa flokk sem er einungis með eitt má á stefnuskrá.  Mannlífið er fjölbreyttara en það.

Ester Sveinbjarnardóttir, 25.3.2007 kl. 16:15

2 Smámynd: Dofri Hermannsson

Tímarnir breytast Lói. Við erum að uppgötva hér það sem fólk var að uppgötva fyrir 20-40 árum í nágrannalöndum okkar. Við höfum okkur til afsökunar að vera ung þjóð. En nú erum við að stækka og fullorðnast. Það verður ekki liðið aftur að farið sé í risastórar ríkisaðgerðir til að búa til 200 störf með 500 milljóna kostnaði á hvert starf (með ríkisábyrgð) og náttúruperlur okkar gefins um alla framtíð.

Dofri Hermannsson, 27.3.2007 kl. 01:19

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Bloggari

Eyjólfur Sturlaugsson
Dalamaður 
eyjolfur.sturlaugsson@gmail.com

 

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 29
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 27
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband